20.1.2009 | 03:01
Vakna þú .....
Raddir fólksins hrópa á þingheim svo hann vakni til lífsins og taki á sínum málum, svo sem Raddir fólksins hafa beðið þingheim um að gera alveg frá því í haust.
Á hverjum laugardegi hafa Raddir fólksins ákallað þingheim á Austurvelli, og jafnvel oftar.
En þingheimur skellir skollaeyrum við Röddum fólksins.
Og þingheimur þegir þunnu hljóði.
Raddir fólksins vita að þingheimur hefur sofið á verðinum, sem þingheimur sór og sárt við lagði að standa vörð um.
Þessvegna varð X-E til.
X-E mun láta til sín heyra.
X-E mun ekki skella skollaeyrum við Röddum fólksins.
X-E mun hlusta á Raddir fólksins og vinna samkvæmt hugmyndum sem Raddir fólksins leggja til.
X-E mun ekki sofna á verðinum.
X-E mun standa vörð um fólkið í landinu.
X-E mun láta verkin tala.
Hvetja til mótmælastöðu við Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:25 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.